Fjölskyldan búin að kaupa flugmiða heim




Kjarninn – Hlaðvarp show

Summary: Jæja, fer þetta ekki að verða búið?! Nei, ekki aldeilis því 32. þátturinn í hlaðvarpsþáttaröðinni Pabbi þarf að keyra er nú aðgengilegur í Hlaðvarpi Kjarnans. Í þáttaröðinni færir Baggalúturinn og fjölmiðlamaðurinn Guðmundur Pálsson ferðalag hans og fjölskyldunnar um Evrópu til heimilda. Gummi hefur síðatliðna átta mánuði eða svo, ferðast um þjóðvegi álfunnar ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum á fjölskyldubílnum sem þau fluttu með sér yfir á meginlandið úr Vesturbæ Reykjavíkur. Ferðasögu Gumma Páls og fjölskyldu verður framhaldið í Hlaðvarpi Kjarnans í dag kl. 11:30. #PabbiÞarfAðKeyra (https://instagram.com/p/33dlHPD0lF/) A photo posted by Kjarninn (@kjarninn) on Jun 13, 2015 at 3:50am PDT Í nýjasta þættinum segir Gummi frá komu fjölskyldunnar til Vínarborgar í Austurríki sem og ferðalagi hennar til landanna þar í kring. Þá bregður sömuleiðis til tíðinda, því fjölskyldan er á leið heim til Íslands á næstu dögum, eftir viðburðaríkt átta mánaða ferðalag um Evrópu (og til Egyptalands). Heyrn er sögu ríkari! Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Taktu þátt í umræðunni um þáttinn með því að nota #PabbiÞarfAðKeyra (https://twitter.com/hashtag/Pabbi%C3%9EarfA%C3%B0Keyra?src=hash) á Twitter.