Lemúrinn: Klæðskipti, konur í buxum og reykvískir sebrahestar




Kjarninn – Hlaðvarp show

Summary: Í þetta sinn skoðar Lemúrinn ólíkar birtingarmyndir kynjanna. Við ferðumst með útlenskum ungum konum sem bjuggu í Reykjavík fyrir hundrað árum og klæddust buxum, sem í þá daga þótti hneykslunarvert. Lemúrinn skoðar líka klæðskipti á öldum áður, en transvestismi á sér mun lengri sögu en flestir halda. Umsjónarmenn þáttarins eru eru Kristín Svava Tómasdóttir, Ragnhildur Hólmgeirsdóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson. Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Lestu svo um meira forvitnilegt á Lemúrinn.is (http://lemurinn.is/).