Lemúrinn: Syndsamlegasta máltíð heims: Dultittlingur




Kjarninn – Hlaðvarp show

Summary: Lemúrinn fjallar um matháka sem fela sig undir munnþurrku til að forðast fordæmingu guðs. Ortolan eða dultittlingur er gjarnan talin syndsamlegasta máltíð heims en veiðar á þessum smáfugli hafa verið bannaðar víðast hvar. Frakkar voru löngum stórtækir í áti á dultittlingum en eldun á honum er sérlega grimmileg. Fyrst þarf að handsama fuglinn lifandi. Eftir það er hann geymdur í myrku búri til þess að rugla hann. Í myrkrinu borðar hann stanslaust.  Þegar dultittlingurinn er orðinn hæfilega stór til neyslu fær hann heldur ljótan dauðdaga. Honum er drekkt í glasi af gómsætu brandýi. Umsjónarmaður er Kristófer Eggertsson. Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Lestu svo um meira forvitnilegt á Lemúrinn.is (http://lemurinn.is/).