Tæknivarpið: Norður-Kóreuvæðing internetsins




Kjarninn – Hlaðvarp show

Summary: Tæknivarpið tekur saman helstu fréttir ársins í heimi tækni og nýunga í síðustu þáttum ársins. Sérstakur aukaþáttur er sendur út í dag og seinni hluti þessarar yfirferðar birtist á fimmtudaginn. Umsjónarmenn þáttarins í þetta sinn eru Gunnlaugur Reynir, Bjarni Ben, Hlini Melsteð, Atli Stefán, Kristján Thors, Andri Valur og Axel Paul. Í fyrri þættinum eru helstu atburðir ársins ræddir. Bera þar hæst innbrot í tölvukerfi Apple og Sony auk innbrota í skjalageymslur kvikmynda og söngstjarna sem birtist á vefnum undir heitinu The Fappening. Þá fara þeir félagar yfir það sem þeir vilja kalla „Norður-Kóreuvæðingu“ internetsins á Íslandi. Þar ber helst að nefna baráttuna gegn Netflix og gegn Deildu og Pirate Bay. Óvenju þétt setið í stúdíóinu í dag #Tæknivarpið (https://twitter.com/hashtag/T%C3%A6knivarpi%C3%B0?src=hash) pic.twitter.com/vSzn5la8q3 (http://t.co/vSzn5la8q3) — Simon.is (@simon_is) December 28, 2014 (https://twitter.com/simon_is/status/549260544847642624) Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Svo má fylgjast með Símon.is á Twitter (https://twitter.com/simon_is), Facebook (https://www.facebook.com/simonpunkturis) og á Simon.is (http://simon.is/).