Pabbi þarf að keyra: Krókurinn á bílnum rakst í götuna




Kjarninn – Hlaðvarp show

Summary: Tíundi þátturinn af ferðasögu Guðmundar Pálssonar, fjölmiðlamanns og Baggalúts, og fjölskyldu er nú aðgengilegur í Hlaðvarpi Kjarnans. Eins og dyggir lesendur Kjarnans vita mætavel, þá heldur Gummi Páls út hlaðvarpsþættinum Pabbi þarf að keyra, þar sem hann færir ferðasögu fjölskyldunnar um Evrópu til heimilda. Gummi Páls ferðast nú um þjóðvegi álfunnar ásamt eiginkonu sinni og börnum á fjölskyldubílnum, en Vesturbæjarfjölskyldan reif sig upp fyrir skemmstu og hélt í ferðalag sem standa á í tæpt ár. Ferðasögu Gumma Páls og fjölskyldu verður framhaldið klukkan 13:00 í Hlaðvarpi Kjarnans. #PabbiÞarfAðKeyra (https://instagram.com/p/xoekDzD0tn/) A photo posted by Kjarninn (@kjarninn) on Jan 9, 2015 at 4:02am PST Í nýjasta þættinum segir Gummi Páls frá heimsókn fjölskyldunnar til Amalfi. Þar keyrði fjölskyldan upp brattar brekkur, svo brattar í raun að krókurinn á bílnum rakst niður í götuna. Gummi spilar hljóðbút í nýjasta þættinum, þar sem heyrist hvað hann var stressaður við aksturinn. Heyrn er sögu ríkari! Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Taktu þátt í umræðunni um þáttinn með því að nota #PabbiÞarfAðKeyra (https://twitter.com/hashtag/Pabbi%C3%9EarfA%C3%B0Keyra?src=hash) á Twitter.