Pabbi þarf að keyra: Hitti mjög svo óvæntan aðdáanda í Bern




Kjarninn – Hlaðvarp show

Summary: Fimmti þátturinn af Pabbi þarf að keyra er nú aðgengilegur í Hlaðvarpi Kjarnans. Þar færir Guðmundur Pálsson, fjölmiðlamaður og Baggalútur, ferðalag hans og fjölskyldunnar um Evrópu til heimilda. Gummi Páls ferðast nú um þjóðvegi álfunnar ásamt eiginkonu sinni og fjórum börnum á fjölskyldubílnum, sem þau fluttu með sér yfir á meginlandið. Þessi sex manna fjölskylda í Vesturbænum reif sig upp fyrir skemmstu og hélt í ferðalag sem á að standa í tæpt ár. Minnum á nýjasta þáttinn í ferðasögu Gumma Páls og fjölskyldu, í Hlaðvarpi Kjarnans. #PabbiÞarfAðKeyra A photo posted by Kjarninn (@kjarninn) on Dec 12, 2014 at 2:26am PST Í nýjasta þættinum segir Gummi Páls frá því þegar hann hitti aðdáanda tiltekins lags með Baggalúti í Bern, og ferðalag fjölskyldunnar um Alpanna áleiðis til Ítalíu. Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Takið þátt í umræðunni um þáttinn með því að nota #PabbiÞarfAðKeyra á Twitter.