Pabbi þarf að keyra: Góð ráð dýr þegar gistingin í Þýskalandi klikkaði




Kjarninn – Hlaðvarp show

Summary: Þriðji þátturinn af Pabbi þarf að keyra er nú aðgengilegur í Hlaðvarpi Kjarnans. Þar færir Guðmundur Pálsson, fjölmiðlamaður og Baggalútur, ferðalag hans og fjölskyldunnar um Evrópu til heimilda. Gummi Páls ferðast nú um þjóðvegi álfunnar ásamt eiginkonu sinni og fjórum börnum á fjölskyldubílnum, sem þau fluttu með sér yfir á meginlandið. Ferðasaga Gumma Páls og fjölskyldu heldur áfram í Hlaðvarpi Kjarnans kl. 13:00 í dag. #PabbiÞarfAðKeyra A photo posted by Kjarninn (@kjarninn) on Nov 11, 2014 at 2:41am PST Í nýjasta þættinum segir Gummi Páls frá því hvernig ferðaplan fjölskyldunnar var sett úr skorðum, þegar gisting sem fjölskyldan hafði pantað í Þýskalandi brást. Þá voru góð ráð dýr, og hægara sagt en gert að tjónka við þýskarann. Heyrn er sögu ríkari! Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Takið þátt í umræðunni um þáttinn með því að nota #PabbiÞarfAðKeyra á Twitter.