Pabbi þarf að keyra: Svitnaði við að lesa veðurspána




Kjarninn – Hlaðvarp show

Summary: Annar þáttur ferðasögu Guðmundar Pálssonar, fjölmiðlamanns og Baggalúts, og fjölskyldu hans um Evrópu er nú aðgengilegur í Hlaðvarpi Kjarnans. Í öðrum þættinum af Pabbi þarf að keyra, fer Guðmundur yfir ferðalag fjölskyldunnar frá Íslandi, þar sem óttast var að slæmt veður á Austfjörðum myndi setja ferðaplönin úr skorðum. Minnum á framhald ferðasögu Gumma Páls og fjölskyldu, Pabbi þarf að keyra, í Hlaðvarpi Kjarnans á morgun. #PabbiÞarfAðKeyra A photo posted by Kjarninn (@kjarninn) on Nov 11, 2014 at 7:56am PST Gummi Páls ferðast nú um þjóðvegi Evrópu ásamt eiginkonu sinni og fjórum börnum á fjölskyldubílnum, og mun færa ferðasögu fjölskyldunnar til heimilda með vikulegum þáttum í Hlaðvarpi Kjarnans. Heyrn er sögu ríkari. Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Takið þátt í umræðunni um þáttinn með því að nota #PabbiÞarfAðKeyra á Twitter.