Gerðu vinsælasta app í heimi




Kjarninn – Hlaðvarp show

Summary: Þegar gengið er inn á skrifstofur Plain Vanilla við Laugaveg í Reykjavík er augljóst að þar gengur vel. Eftir að hafa þrammað dúklagðan stigagang taka við marmaratröppur upp á efstu hæð hússins og þegar komið er á efsta stigapallinn blasir veggbreið ljósmynd við. Við enda myndarinnar er síðan hurð sem er vel merkt fyrirtækinu sem ég heimsæki. Þar ætla ég að ræða við Ými Örn Finnbogason fjármálastjóra um ævintýri síðustu mánaða. Plain Vanilla gaf í síðustu viku út eitt vinsælasta app í heimi fyrir iPhone og iPad. Spurningaleikurinn QuizUp hefur orðið vinsæll á svo skömmum tíma að aðeins fimm dögum eftir að hann varð fyrst aðgengilegur sáu yfirmenn fyrirtækis­ins sér ekki annað fært en að auglýsa eftir sjö starfsmönnum í hin ýmsu störf.